Forsíða Fréttasafn ÍBR Vetrargjöf til barna í 4.bekk
Vetrargjöf til barna í 4.bekk Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 22. október 2009 14:51

Undanfarin fimm ár hefur Íþróttabandalag Reykjavíkur gefið börnum í grunnskólum Reykjavíkur sumargjafir. Börn  í 2. bekk hafa fengið sippuband,  börn í 3. bekk bolta, 4. bekk hefur verið boðið á skauta og börnum í 5.bekk í sund. Tilgangurinn er að gleðja reykvísk börn og um leið hvetja þau til að hreyfa sig og leika sér með tilvísun í íþróttir almennt.

Í ár var ákveðið að gera tilraun með að gefa 4.bekkingum sína gjöf, skautaferð, í kringum fyrsta vetrardag. Það er von okkar að þessi vetrarlega gjöf nýtist þá börnunum betur. Gjöfin barst til skólanna í vikunni og geta nemendur byrjað að nýta sér boðið fyrsta vetrardag laugardaginn 24.október næstkomandi.

Vetrargjöfin er með þeim hætti að hver einstaklingur fær aðgöngumiða að skautasvelli og leigu á skautum og hjálmi sem gildir í Skautahöllina í Laugardal eða í Egilshöll í Grafarvogi. Boðsmiðinn gildir fyrir einstakling á almennum opnunartímum eða á skólatíma fyrir bekk, en þá þarf að panta tíma og hafa með sér einn fullorðinn fylgdarmann.



 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700