Forsíða Fréttasafn ÍBR Þórdís fær verðskuldaða viðurkenningu
Þórdís fær verðskuldaða viðurkenningu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 12. október 2009 15:30

Þórdís Lilja Gísladóttir tekur um næstu helgi á móti sérstakri viðurkenningu frá Evrópska frjálsíþróttasambandinu í Búdapest. Viðurkenninguna fær Þórdís fyrir einstakt framlag sitt til frjálsíþrótta og nefnist upp á enska tungu The European Athletics Women´s Leadership Award. Þetta er í fyrsta skipti sem hún er veitt en frjálsíþróttasambandið vill vekja athygli á starfi kvenna innan frjálsíþrótta í Evrópu. Þórdís segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að hún taki við þessari viðurkenningu fyrir hönd allra þeirra kvenna sem lagt hafa sitt af mörkum.

Þórdís Lilja hefur undanfarin ár staðið fyrir uppbyggingu á frjálsíþróttadeild ÍR ásamt manni sínum Þráni Hafsteinssyni með einstaklega góðum árangri sem eftir hefur verið tekið. Hún hefur setið í stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur frá árinu 2006. Íþróttahreyfingin í Reykjavík er heppin að hafa þessa öflugu konu starfandi innan sinna vébanda.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 13. október 2009 18:44
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700