| Íþrótta- og félagsstarf í Reykjavík |
|
|
| Föstudagur, 28. ágúst 2009 13:09 |
|
Í ár var gerð töluverð breyting frá því sem verið hefur í uppsetningu ritsins. Finna má öll íþróttafélög í Reykjavík í ritinu í stafrófsröð. Hjá hverju félagi koma fram helstu grunnupplýsingar eins og aðsetur, símanúmer, netföng og heimasíður. Þeir sem hafa ákveðna íþróttagrein í huga og vilja vita hvar er hægt að iðka hana geta flett upp á opnu með yfirliti yfir allar þær greinar sem hægt er að iðka í borginni. Þá eru einnig kort af hverfum borgarinnar með upplýsingum um staðsetningu og æfingastaði íþróttafélaganna. Allur almennur texti í ritinu og upptalning á íþróttagreinum er á fjórum tungumálum; íslensku, ensku, pólsku og tælensku. Kynningarritinu er dreyft til allra grunnskólabarna í borginni. Einnig verða send eintök til íþróttafélaga, frístundamiðstöðva, heilsugæslustöðva o.fl. Smellið hér til að skoða ritið á tölvutæku formi (pdf).
|
| Síðast uppfært: Föstudagur, 28. ágúst 2009 13:31 |