Forsíða Fréttasafn ÍBR Vinabæjarmót í Turku
Vinabæjarmót í Turku Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 13. ágúst 2009 18:23

Fimm fulltrúar íþróttafélaganna í Reykjavík héldu til Turku í Finnlandi í dag til að taka þátt í vinabæjarmóti. Á mótinu hittast fulltrúar borganna Aarhus í Danmörku, Bergen í Noregi, Gautaborgar í Svíþjóð auk gestgjafanna og Reykjavíkur.

Að þessu sinni koma fjórir ungir þjálfarar/leiðtogar úr íþróttahreyfingunni frá hverri borg auk eins fulltrúa borgarinnar eða íþróttabandalaganna. Gígja Gunnarsdóttir, stjórnarmaður Íþróttabandalags Reykjavíkur, er fulltrúi Reykjavíkur á mótinu en ungu þjálfararnir eru þau Soffía Felixdóttir, ÍR, Sigurbjörg Jóhannsdóttir, Fram, Sindri Guðmundsson, Víking, og Jónas Valgeirsson, Ármanni.

Ungu þjálfararnir munu sitja fræðandi fyrirlestra og vinna verkefni með jafnöldrum sínum á Norðurlöndunum. Markmiðin eru bæði að finna leiðir til að fá fleira ungt fólk til að starfa við íþróttir hjá íþróttafélögum og að auka kunnáttu og leiðtogahæfni þjálfaranna. Fulltrúar borganna munu skoða mannvirki og sitja sameiginlega fundi.

 

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700