Forsíða Fréttasafn ÍBR Bikarmeistarar ÍR
Bikarmeistarar ÍR Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 10. ágúst 2009 10:13

Frjálsíþróttalið ÍR vann um helgina langþráðan sigur í 44. bikarkeppni FRÍ þegar það hafði betur í baráttu við FH sem hefur unnið keppnina síðastliðin 15 ár. Sigur ÍR í samanlagðri keppni var öruggur en FH vann stigakeppni karla og ÍR stigakeppni kvenna.

ÍR vann keppnina sextán ár í röð á sínum tíma og tókst því með naumindum að halda því meti en þetta var fyrsti sigur ÍR-inga í keppninni í 20 ár.

ÍR hlaut samtals 180 stig í keppninni en FH 163. Í þriðja sæti varð Ármann/Fjölnir með 118 stig og Breiðablik í því fjórða með 114,5 stig. Sameinað lið Norðurlands var svo í fimmta sæti með 107 stig og HSK rak lestina með 90,5 stig.

Í stigakeppni kvenna var ÍR með 91 stig, 25 stigum meira en FH sem varð í 2. sæti. Ármann/Fjölnir fékk 58 stig, HSK 56,6, Breiðablik 52 og Norðurland 51,5.

Í stigakeppni karla vann FH enn og aftur sigur með 97 stig, ÍR fékk 89, Breiðablik 62,5, Ármann/Fjölnir 60, Norðurland 55,5 og HSK hlaut 34 stig.

Síðast uppfært: Mánudagur, 10. ágúst 2009 10:32
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700