| Landsmótsmeistarar í borðtennis |
|
|
| Miðvikudagur, 15. júlí 2009 21:56 |
Borðtennislið ÍBR var sigursælt á nýafstöðnu Landsmóti UMFÍ 2009. Reykvíkingarnir sigruðu í einliðaleik karla og kvenna og fengu flest stig í liðakeppninni. Í einliðaleik karla hreppti ÍBR þrjú efstu sætin, Magnús Kristinn Magnússon sigraði, Daði Freyr Guðmundsson varð í öðru sæti og Davíð Jónsson í því þriðja. Í einliðaleik kvenna sigraði Reykvíkingurinn Magnea J. Ólafs og varði þar með titil sinn frá Landsmótinu 2007. Auk framangreindra voru Daníel Bergmann og Soffía G. Jóhannesdóttir í liðsveit ÍBR í borðtennis sem varði titil sinn í liðakeppninni frá fyrra Landsmóti. Meðfylgjandi er mynd af sigurliði ÍBR í borðtennis á Landsmóti UMFÍ 2009. Efri röð f.v.: Magnús Kristinn Magnússon, Daði Freyr Guðmundsson og Daníel Bergmann. Neðri röð f.v.: Magnea J. Ólafs, Soffía G. Jóhannesdóttir og Davíð Jónsson. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 15. júlí 2009 22:03 |