Forsíða Fréttasafn ÍBR Landsmótið byrjar vel hjá Reykjavík
Landsmótið byrjar vel hjá Reykjavík Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 10. júlí 2009 22:00

Veðrið hefur leikið við Landsmótsgesti á Akureyri fyrstu tvo keppnisdagana. Mótið hófst á fimmtudag en í dag fór setningarathöfnin fram á glæsilegum nýjum velli Akureyringa á Þórssvæðinu.

Landsmótið byrjar vel hjá Reykvíkingum sem hafa sigrað í badmintonkeppninni og eru með forystu í bridds. Meðfylgjandi mynd var tekin af Reykvíska badmintonliðinu í Íþróttahöllinni á Akureyri á fimmtudagskvöldið. Þá sigraði Reykvíkingurinn Pétur Eyþórsson í -90 kg flokki í glímu og Jóhanna Ingadóttir sigraði í langstökki kvenna. Reykvíkingar höfðu nokkra yfirburði í sleggjukasti kvenna og 800 m hlaupi kvenna í dag. Sandra Pétursdóttir sigraði í sleggjukastinu og María Ósk Felixdóttir var í öðru sæti. Fjórar fyrstu í 800 m hlaupi kvenna voru frá Reykjavík þar sem Björg Gunnarsdóttir sigraði.

 

Eftir fyrsta daginn er ÍBR í sjöunda sæti í stigakeppni Landsmótsins af tuttugu og fjórum héraðssamböndum. Greinar eins og bridds og frjálsar íþróttir hafa ekki verið reiknaðar inn í þessa tölu enda keppni ekki lokið í þeim greinum. Smellið hér til að fylgjast með stigakeppni Landsmótsins. 

Tjaldsvæði Landsmótsins er á Rangárvöllum. Keppendur ÍBR og Íþróttabandalags Hafnarfjarðar deila tjaldvæði og eru þar með sameiginlegt matartjald. Frímann Ari Ferdinandsson er tjaldbúðarstjóri Reykvíkinga.

Keppni á Landsmótinu lýkur á sunnudag. Smellið hér til að skoða dagskrá mótsins. 

 

 

Síðast uppfært: Laugardagur, 11. júlí 2009 01:08
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700