Forsíða Fréttasafn ÍBR Góð ferð til Aþenu
Góð ferð til Aþenu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 30. júní 2009 13:37

Hópurinn á AkrapólishæðReykvíski hópurinn sem tók þátt í Alþjóðaleikum ungmenna í Aþenu um síðustu helgi er kominn heim. Ferðin gekk mjög vel og var hópurinn Reykjavík til sóma innan vallar sem utan. Á leikunum kepptu 1500 ungmenni á aldrinum 12-15 ára í sjö íþróttagreinum fyrir sínar borgir.

Víkingurinn Rafn Kumar Bonifacius keppti í tennis fyrir Reykjavík á leikunum. Hann sat hjá í fyrstu umferð keppninnar en mætti í annarri umferð andstæðing frá Úkraínu, Adalbert Nemesh. Úkraínumaðurinn var mjög sterkur og hafði nokkra líkamlega yfirburði sem geta vegið þungt á þessum aldri. Rafn Kumar tapaði leiknum 6-0 og 6-1.

Reykjavíkurúrvalið í körfuknattleik karla var í fjögurra liða riðli með gríska liðinu Pireas, Kecskement frá Ungverjalandi og Marion frá Indiana í Bandaríkjunum. Allir leikir strákanna voru jafnir og spennandi. Þeir sigruðu Grikkina 42-31 og Bandaríkjamennina á flautukörfu 49-47. Þeir urðu hinsvegar að játa sig sigraða fyrir Ungverjunum þrátt fyrir að hafa verið með forystuna stærstan hlutann af leiknum 45-50. Aðeins eitt lið komst uppúr riðlinum og því fengu reykvísku strákarnir ekki fleiri leiki. Reykjavík varð í 5.-8.sæti af 17 liðum.  Þjálfari reykvíska körfuknattleiksliðsins var Gunnar Sverrisson en liðið skipuðu þeir Arthúr Ross Möller, Fjölni, Daníel Capaul, ÍR, Darri Freyr Atlason, KR, Martin Hermannsson, KR, Matthías Orri Sigurðarson, KR, Róbert Sigurðsson, Fjölni, Snæþór Helgi Bjarnason, ÍR og Þorgrímur Kári Emilsson, ÍR.

Fimleikakeppni alþjóðaleikanna var fjölmenn og skemmtileg. Í fjölþraut varð Hildur Ólafsdóttir úr Fylki í 18.sæti þegar hún fékk 43,05 stig sem er persónulegt met hjá henni, Jóhanna Rakel Jónasdóttir úr Ármanni setti einnig persónulegt met þegar hún varð í 11.sæti og hlaut 46,55 stig, Sigurður Andrés Sigurðsson, Ármanni, varð í 16.sæti í með 62,1 stig sem er hans besti árangur og Alexander Jens Ásgeirsson, Ármanni, varð í 18.sæti með 55,3 stig. Þau Alexander og Jóhanna Rakel komust síðan áfram í úrslit, Alexander í stökki og Jóhanna á gólfi. Þar endaði Alexander í 7.sæti með 12,6 stig og Jóhanna í 5.sæti með 12,45 stig. 

Keppnisdagskrá leikanna var mjög þétt og því gafst ekki mikill tími til að skoða sig um. Hópurinn náði þó að skoða hina heimsfrægu Akrópólishæð og fara í klukkustundar búðarferð í miðbænum. Þá bauð ræðismaður Íslands í Aþenu, Yannis Lyberopoulos, hópnum til kvöldverðar á heimili sínu. Hópurinn var sérstaklega þakklátur fyrir þetta boð og frábærar móttökur hjá ræðismanninum.

Næstu leikar verða í Manama í Bahrain og stefnir Reykjavík að sjálfsögðu að þátttöku eins og undanfarin níu ár.

Smellið hér til að skoða myndir frá leikunum og hér til að skoða heimasíðu mótshaldara í Aþenu.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 01. júlí 2009 15:33
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700