| Lokadagur Alþjóðaleika í Aþenu |
|
|
| Laugardagur, 27. júní 2009 12:29 |
|
Tveir reykvískir fimleikamenn kepptu til úrslita í dag í fimleikakeppninni. Alexander Jens Ásgeirsson, Ármanni, lenti í 7. sæti í keppni í stökki(12,6 stig) og Jóhanna Rakel Jónasdóttir, einnig úr Ármanni, lenti í 5. sæti í úrslitum í gólfæfingum(12,45 stig). Hópurinn er svo á leið í skoðunarferð á hina heimsfrægu Akrópólishæð í Aþenu seinni partinn og fer svo þaðan á lokahátíðina. Áætluð heimkoma í ÍBR er svo kl. 1:30 aðfararnótt mánudagsins en mælst er til þess að foreldrar séu í sambandi við keppendur rétt eftir miðnætti en þá ætti hópurinn að vera lentur í Keflavík.
|
| Síðast uppfært: Mánudagur, 29. júní 2009 10:54 |