Forsíða Fréttasafn ÍBR Frábær sigur í körfunni
Frábær sigur í körfunni Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 26. júní 2009 14:06

Reykjavíkurúrval drengja sigraði lið Marion IN frá Bandaríkjunum í síðustu umferð riðlakeppni körfuknattleiks á Alþjóðaleikum ungmenna í Aþenu í dag. Leikurinn var æsispennandi en reykvíska liðið sigraði nánast á flautukörfu 49-47. Sannarlega glæsilegur sigur á þessu sterka bandaríska hjá strákunum. Í gær töpuðu reykvísku strákarnir naumlega fyrir Kecskement frá Ungverjalandi en á miðvikudaginn sigruðu þeir Pireas frá Grikklandi. Ungverska liðið komst áfram í undanúrslit keppninnar og því hefur lið Reykjavíkur liðið lokið keppni.

Fimleikastrákarnir Alexander Jens Ásgeirsson og Sigurður Andrés Sigurðsson hófu keppni í fimleikum í morgun. Sigurður varð í 16.sæti í með 62,1 stig sem er hans besti árangur. Alexander varð í 18.sæti með 55,3 stig og eru líkur á því að hann sé komin í úrslit í stökki. Staðfesting á úrslitasæti ætti að berast í kvöld en úrslitin fara fram á morgun laugardag. Jóhanna Rakel Jónasdóttir stóð sig vel í fimleikakeppninni í gær og hefur nú verið staðfest að hún mun keppa til úrslita í gólfæfingum á morgun.

Í kvöld er reykvíska hópnum boðið til kvöldverðar hjá ræðismanni Íslands í Aþenu, Yannis Lyberopoulos.

Smellið hér til að skoða heimasíðu Alþjóðaleika Ungmenna í Aþenu.

Síðast uppfært: Föstudagur, 26. júní 2009 14:36
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700