| Svekkjandi tapleikur í körfunni |
|
|
| Fimmtudagur, 25. júní 2009 15:00 |
|
Strákarnir byrjuðu leikinn mjög vel og voru yfir 15-0. Í hálfleik voru þeir með 13 stiga forystu og allt leit vel út. Í seinni hálfleik breyttist leikurinn og Ungverjarnir náðu forystu undir lokin og sigruðu 48-43. Okkar menn voru að sjálfsögðu mjög svekktir með tapið eftir annars góða byrjun á leiknum. Opnunarhátíð Alþjóðaleikanna var haldin á Kalimarmaron – Panathinaikon leikvanginum í gærkvöldi. Fyrstu Ólympíuleikar nútímans voru haldnir á þessum velli. Reykvíska hópnum þótti opnunarhátíðin heldur langdregin með mikið af ræðum og kórsöng. Smellið hér til að skoða heimasíðu leikanna. |