| Frímann Ari í stjórn ICG |
|
|
| Miðvikudagur, 24. júní 2009 15:26 |
|
Í Aþenu í morgun var haldinn aðalfundur International Children´s Games samtakanna (ICG). Samtökin hafa staðið fyrir Alþjóðaleikum ungmenna (International Children´s Games) í tæp 40 ár og hafa verið viðurkennd af Alþjóða Ólympíunefndinni frá 1990. Frímann Ari Ferdinandsson, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur, var í framboði til stjórnar samtakanna. Hann hlaut glæsilega kosningu á aðalfundinum í morgun þegar hann fékk 17 af 23 atkvæðum. Það er frábært fyrir íþróttafélögin í Reykjavík að vera komin með fulltrúa í stjórn ICG enda um skemmtilegt íþróttamót að ræða þar sem Reykjavíkingar keppa í sama liði fyrir hönd höfuðborgarinnar. Smellið hér til að skoða heimasíðu samtakanna. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 24. júní 2009 17:31 |