Forsíða Fréttasafn ÍBR Reykvískur sigur í fyrsta leik
Reykvískur sigur í fyrsta leik Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Miðvikudagur, 24. júní 2009 11:04

Körfuknattleikslið Reykjavíkur sem tekur þátt í Alþjóðaleikum Ungmenna í Aþenu sigraði í sínum fyrsta leik á mótinu. Reykjavísku strákarnir mættu gríska liðinu Pireas og sigruðu glæsilega 42-31. Frábær árangur hjá strákunum enda Grikkir þekktir fyrir að vera nokkuð öflug körfuknattleiksþjóð. Næsti leikur strákanna er á morgun fimmtudag.

Þjálfari reykvíska körfuknattleiksliðsins er Gunnar Sverrisson en liðið skipa þeir Arthúr Ross Möller, Fjölni, Daníel Capaul, ÍR, Darri Freyr Atlason, KR, Martin Hermannsson, KR, Matthías Orri Sigurðarson, KR, Róbert Sigurðsson, Fjölni, Snæþór Helgi Bjarnason, ÍR og Þorgrímur Kári Emilsson, ÍR.

Mikil hiti er í höllinni þar sem körfuknattleikskeppnin fer fram og engin loftkæling. Að öðru leiti er góð aðstaða fyrir íþróttafólkið.

Rafn Kumar Bonifacius hefur keppni í tennis nú um hádegisbil.

Smellið hér til að skoða heimasíðu Alþjóðaleika ungmenna í Aþenu.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 24. júní 2009 15:22
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700