Forsíða Fréttasafn ÍBR Mikið um að vera í Laugardalnum
Mikið um að vera í Laugardalnum Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 23. júní 2009 09:16

Það verður mikið um að vera í Laugardalnum í dag þegar haldið verður uppá alþjóðlega Ólympíudaginn. Dagskrá hefst kl.17.00 og lýkur með Miðnæturhlaupi Powerade kl. 22.00.

Dagskrá dagsins er eftirfarandi:

Fimleikar í Laugabóli kl. 17:00-19:00
Hægt er að fylgjast með æfingu og prófa undir öruggri handleiðslu.

Judó í Laugabóli kl. 17:00-19:00
Velkomið að prófa, kynnast reglunum og ýmislegt fleira.

Frjálsíþróttir á Laugardalsvelli kl. 17:00-19:00
Ásdís Hjálmsdóttir spjótkasti sýnir spjótkast og leiðbeinir þeim sem vilja.
Einnig verður hægt að prófa kúluvarp, langstökk og fá mældan tíma á 30 metra spretti.

Skylmingar undir stúkunni á Laugardalsvelli kl. 18:00-19:00
Komdu og kannaðu hvað þú getur gert með sverðinu.

Miðnæturhlaup Powerade hefst kl. 22.00
Þetta frábæra hlaup hentar fólki á öllum aldri, bæði byrjendum og lengra komnum og hægt er að velja um þrjár vegalengdir. Nánari upplýsingar á marathon.is.

 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 23. júní 2009 09:43
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700