| Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ |
|
|
| Föstudagur, 19. júní 2009 11:32 |
|
Í ár er yfirskrift hlaupsins “TÖKUM ÞÁTT – HEILSUNNAR VEGNA” að tilefni samstarfs ÍSÍ við Krabbameinsfélag Íslands. Léttur leikur er í gangi á sjova.is. Það eina sem þarf að gera er að senda inn nafn, mynd eða myndskeið á sjova.is og þú getur unnið dekur fyrir allt að 10 manns. Sjóvá gefur öllum þátttakendum á aldrinum 18-55 ára fría líftryggingu að upphæð 1. milljón króna í eitt ár. Fjölbreytt dagskrá verður um allt land á hlaupastöðum en í Garðabæ hefst dagskrá kl: 13:30 þar sem Hrafnkell og Jónsi úr Svörtum fötum halda uppi stemningunni, Helga Braga kemur og skemmtir, Kvennatríó frá FÍH syngja söngleikjalög og Sjóvá kórinn tekur nokkur lög. Hlaupið verður ræst kl. 14:00. Í Mosfellsbæ, á Akureyri og Egilsstöðum hefst hlaupið kl: 11:00. Allar upplýsingar um hlaupastaði og forsölu á bolum er að finna á sjova.is. |
| Síðast uppfært: Föstudagur, 19. júní 2009 11:37 |