| Norðmenn í heimsókn |
|
|
| Sunnudagur, 14. júní 2009 21:37 |
|
Farið var í heimsóknir á ellefu staði á einum og hálfum þéttsettnum degi. Heimsóknirnar voru í Egilshöll í Grafarvogi, golfvöll GR á Korpúlfsstöðum, golfæfingasvæðið Básar í Grafarholti, fimleikahús Gerplu og Salalaug í Kópavogi, Laugardalshöll, Laugaból Þróttar og Ármanns í Laugardal, TBR-húsin við Gnoðarvog, Valsheimilið við Hlíðarenda, Laugardalslaug, World Class Laugum og Laugardalsvöll. Þá fékk hópurinn kynningu á skipulagi íþróttamála í landinu hjá ÍSÍ og fyrirlestur um helstu verkefni ÍBR. Móttökurnar í íþróttamannvirkjunum voru mjög góðar og starfsmenn einstaklega liprir við að sýna, segja frá og svara spurningum gestanna.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í heimsóknum hópsins í vikunni, önnur á Korpúlfsstöðum með Hinriki G. Hilmarssyni og hin á Laugardalsvelli með Þorvaldi Ingimundarsyni.
Smellið hér til að skoða heimasíðu Oslo Idræts Kreds. |
| Síðast uppfært: Sunnudagur, 14. júní 2009 23:07 |