| Glæsilegir fulltrúar Reykjavíkur |
|
|
| Miðvikudagur, 03. júní 2009 13:32 |
|
Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlandanna fór fram í Stokkhólmi í síðustu viku. Knattspyrnulið drengja og körfuknattleikslið stúlkna frá Reykjavík tók þátt í mótinu. Krakkarnir stóðu sig vel og voru glæsilegir fulltrúar Reykjavíkur. Drengirnir urðu í 2.sæti í knattspyrnukeppninni og körfuboltastúlkurnar urðu í 3.sæti.
Körfuknattleikslið Reykjavíkur. Efri röð Stefanía Bonnie Lúðvíksdóttur, þjálfari, Selma Skúladóttir, Foldaskóla, Elsa Rún Karlsdóttir, Austurbæjarskóla, Sara Diljá Sigurðardóttir, Ingunnarskóla, Bergdís Sigurðardóttir, Seljaskóla, Margrét Ósk Einarsdóttir, Háteigsskóla. Neðri röð Gunnhildur Gunnarsdóttir, Hagaskóla, Sigríður Elísa Karlsdóttir, Hagaskóla, Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir, Hagaskóla, Miranda Kelmendi, Seljaskóla, og Sólbjörg Guðrún Vilhelmsdóttir, Hagaskóla.
Knattspyrnulið Reykjavíkur var skipað eftirfarandi: Rúnar Alex Rúnarsson, Hagaskóla, Reynir Haraldsson, Ölduselsskóla, Jakub Sebastian Warzycha, Ölduselsskóla, Benedikt Októ Bjarnason, Álftamýrarskóla, Hjörtur Hermannsson, Árbæjarskóla, Hákon Jónsson, Árbæjarskóla, Sindri Björnsson, Hólabrekkuskóla, Eggert Þór Steinþórsson, Korpuskóla, Kristinn Jerawad Sigurðsson, Hagaskóla, Stefán Pálsson, Seljaskóla, Emil Ásmundsson, Árbæjarskóla, Ólafur Íshólm Ólafsson, Árbæjarskóla, Brynjar Gauti Þorsteinsson, Hamraskóla, Jón Konráð Guðbergsson, Háteigsskóla, Daði Bergsson, Laugalækjarskóla. Myndin hér að ofan er af liðinu ásamt þjálfara sínum Valdimar Stefánssyni og fararstjórunum frá ÍBR Steini Halldórssyni og Brynju Guðjónsdóttur. Nánari upplýsingar um úrslit og fleira má finna á heimasíðu mótsins.
|
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 03. júní 2009 15:34 |