| Verðlaunaafhending "Hjólað í vinnuna" |
|
|
| Föstudagur, 29. maí 2009 13:56 |
|
Íþróttabandalag Reykjavíkur tók í fyrsta sinn í ár þátt í verkefninu með því að veita reykvískum sigurvegurum í keppninni um flesta þátttökudaga verðlaun. Reykvískir sigurvegarar í flokkunum 3-9 starfsmenn og 10-29 starfsmenn fengu gjafabréf í skemmtiskokk Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka og sigurvegarar í fjölmennari starfsmannaflokkum fengu gjafabréf í Skautahöllina í Laugardal fyrir starfsmannahópinn. Í flokknum 400 og fleiri starfsmenn stóðu starfsmenn Símans sig best innan Reykjavíkur en í flokknum 150-399 starfsmenn var það Mannvit sem varð hlutskarpast. Hafrannsóknarstofnunin sigraði í flokki 70-149 starfsmanna og Leikskólinn Suðurborg í flokki 30-69 starfsmanna. Starfsmenn Símans, Mannvits, Hafrannsóknarstofnunar og Leikskólans Suðurborgar sem tóku þátt í "Hjólað í vinnuna" geta farið saman í hópferð á skauta í Skautahöllina í Laugardal í haust. Hugbúnaðarfyrirtækið Hugfang varð hlutskarpast vinnustaða í Reykjavík í flokknum 3-9 starfsmenn og Calidris í flokknum 10-29 starfsmenn. Starfsmenn Hugfangs og Calidris fá frí þátttökugjöld í skemmtiskokk Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 22.ágúst 2009. Formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvar Sverrisson, veitti fulltrúum vinnustaðanna gjafabréf fyrir sinn starfsmannahóp á verðlaunaafhendingu í Húsdýragarðinum í hádeginu í dag. Meðfylgjandi myndir voru teknar við það tilefni. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um hvatningar- og átaksverkefnið "Hjólað í vinnuna". ![]()
|
| Síðast uppfært: Föstudagur, 29. maí 2009 15:11 |