| Silfur hjá strákunum |
|
|
| Fimmtudagur, 28. maí 2009 13:58 |
|
Knattspyrnustrákarnir sem keppa fyrir hönd Reykjavíkur á grunnskólamóti höfuðborga norðurlandanna voru rétt í þessu að vinna til silfurverðlauna á mótinu. Þeir mættu í úrslitaleik liði Stokkhólms sem sigraði 5-1. Stefán Pálsson skoraði mark Reykjavíkur. Fararstjórar hópsins sögðu að strákarnir hefðu verið þreyttir eftir leikinn við Kaupamannahöfn í morgun en Svíarnir áttu frí fyrri part dags. Í Stokkhólmi er veðurblíða og þar fer mjög vel um hópinn. Ferðin sem hefur verið skemmtileg og mjög vel heppnuð endar á morgun þegar hópurinn flýgur heim til Íslands. Reykvísku krakkarnir hafa allir verið til fyrirmyndar í ferðinni og verið sjálfum sér og Reykjavík til sóma. Smellið hér til að skoða heimasíðu mótsins með nánari upplýsingum um grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna.
|
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 28. maí 2009 15:28 |