| Reykjavík leikur til úrslita í Stokkhólmi |
|
|
| Fimmtudagur, 28. maí 2009 10:04 |
|
Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlandanna hefur farið fram í Stokkhólmi undanfarna daga og lýkur í dag. Ungmennin sem taka þátt í mótinu eru á aldrinum 12-14 ára. Reykvíska knattspyrnuliðið er ósigrað á mótinu og leikur til úrslita gegn Stokkhólmi síðar í dag. Í morgun sigruðu strákarnir lið Kaupmannahafnar 7-0. Emil Ásmundsson og Daði Bergsson skoruðu tvö mörk hvor í sigurleiknum en Stefán Pálsson, Kristinn J. Sigurðsson og Jón K. Guðbergsson skoruðu sitt markið hver. Í gær sigruðu reykvísku strákarnir Osló 2-0 og á þriðjudaginn var það finnska liðið sem tapaði fyrir því íslenska 10-1. Körfuknattleiksstúlkurnar reykvísku unnu sinn fyrsta sigur á mótinu í morgun þegar þær lögðu lið Osló 45-33. Síðar í dag mæta stelpurnar liði Kaupmannahafnar. Leikurinn er úrslitaleikur um 3.sætið á mótinu því Helsinki og Stokkhólmur hafa unnið alla leiki sína með yfirburðum. Smellið hér til að skoða heimasíðu mótsins með nánari upplýsingum.
|