| Norðmenn lagðir |
|
|
| Miðvikudagur, 27. maí 2009 09:29 |
|
Reykvíska knattspyrnuliðið sem tekur þátt í Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna í Stokkhólmi sigraði lið Osló í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá fararstjórum var um hörku leika að ræða sem endaði með naumum sigri okkar stráka 2-0. Það voru þeir Kristinn J. Sigurðsson og Hákon Jónsson sem skoruðu mörk Reykjavíkur. Reykvísku strákarnir eru ósigraðir á mótinu en þeir lögðu lið Helsinki 10-1 í gær. Á morgun fimmtudag mæta strákarnir liði Kaupamannahafnar fyrir hádegi og heimamönnum frá Stokkhólmi eftir hádegi. Eftir hádegi í dag er öllum þátttakendum mótsins boðið í mótttöku í Ráðhúsinu í Stokkhólmi og í kvöld fer hópurinn síðan með ferju í tívolíið Grönna Lund. Smellið hér til að skoða heimasíðu mótsins.
|
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 28. maí 2009 10:11 |