Forsíða Fréttasafn ÍBR Sigur og tap í Stokkhólmi
Sigur og tap í Stokkhólmi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 26. maí 2009 14:52

Keppni dagsins á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna er nú lokið. Segja má að skipst hafi á skin og skúrir hjá reykvíska hópnum.

Knattspyrnudrengirnir mættu liði Helsinki og unnu stór sigur 10-1. Emil Ásmundsson og Stefán Pálsson skoruðu þrjú mörk hvor í leiknum. Þá skoraði Sindri Björnsson tvö mörk og Daði Bergsson og Brynjar G. Thorsteinsson sitt markið hvor í þessum glæsilega sigri Reykjavíkur. Þetta var fyrsti leikur knattspyrnuliðsins en á morgun mætir það liði Osló sem tapaði fyrir Kaupmannahöfn í gær 3-0.

Körfuboltastúlkurnar spiluðu sinn annan leik í mótinu í dag þegar þær mættu Helsinki. Finnsku stúlkurnar sigruðu örugglega 83-23 en miðað við fyrstu leiki teljast þær vera með sterkasta lið mótsins. Í gær töpuðu reykvísku stúlkurnar fyrir liði Stokkhólms. Næstu leikir í körfuboltanum eru á fimmtudag þegar reykvísku stúlkurnar mæta liði Osló og Kaupmannahafnar.

Reykvíski hópurinn fékk skemmtilega heimsókn á mótssvæðið í dag en þá kom sendiherra Íslands í Svíþjóð, Guðmundur Árni Stefánsson, til að fylgjast með keppninni.

Smellið hér til að skoða heimasíðu mótsins.

 

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 28. maí 2009 10:14
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700