| Dagskrá dagsins í Stokkhólmi |
|
|
| Mánudagur, 25. maí 2009 13:29 |
|
Reykvíski hópurinn sem tekur þátt í Grunnskólamóti höfuðborga Norðurlandanna kom til Stokkhólms í hádeginu í dag. Ferðin gekk mjög vel og eru nú allir þátttakendur komnir á íþróttasvæðið Bosön þar sem hópurinn gistir. Strax í dag hefja körfuknattleiksstúlkurnar keppni en þær mæta liði Stokkhólms kl.14.30 að íslenskum tíma. Eftir keppnina fá þátttakendur kvöldmat og fara síðan í skoðunarferð um Bosönsvæðið. Keppni heldur áfram á morgun og stendur yfir fram á fimmtudag. Hópurinn kemur síðan aftur til landsins á föstudaginn. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um mótið.
|
| Síðast uppfært: Mánudagur, 25. maí 2009 20:35 |