| Grunnskólamót Norðurlanda í Stokkhólmi |
|
|
| Föstudagur, 22. maí 2009 15:46 |
|
Hópurinn samanstendur af 15 knattspyrnudrengjum og 10 körfuknattleiksstúlkum auk þjálfara og farastjóra. Keppendur eru á aldrinum 12-14 ára og koma úr 14 skólum í Reykjavik. Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur umsjón með verkefninu fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Dvalið verður á eyju í Stokkhólmi sem heitir Lidingeyja. Þar er gist og keppt á svæði sem heitir Bosön sem er helsta aðsetur Svía fyrir æfingar og keppni þeirra íþróttafólks. Smellið hér til að kynna ykkur Bosön svæðið. Heimasíða mótsins þar sem hægt er að fylgjast með dagskrá og úrslitum má finna með því að smella hér. |
| Síðast uppfært: Mánudagur, 25. maí 2009 13:53 |