Forsíða Fréttasafn ÍBR Hjólað í vinnuna - Áfram Reykjavík!
Hjólað í vinnuna - Áfram Reykjavík! Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 08. maí 2009 09:36

www.hjoladivinnuna.isÍþróttabandalag Reykjavíkur hvetur alla vinnustaði í Reykjavík til að taka þátt í hvatningar- og átaksverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Hjólað í vinnuna.  Í tilefni af verkefninu mun Íþróttabandalag Reykjavíkur veita þeim vinnustöðum í Reykjavík sem ná bestri hlutfallslegri þátttöku, þ.e. sigra flokkinn „flestir þátttökudagar“, skemmtileg og hreyfihvetjandi verðlaun.

Reykvískir sigurvegarar í flokkunum 3-9 starfsmenn og 10-29 starfsmenn fá gjafabréf í skemmtiskokk Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2009 fyrir alla starfsmenn sem taka þátt í Hjólað í vinnuna. Sigurvegarar í fjölmennari starfsmannaflokkum keppninnar fá gjafabréf í Skautahöllina í Laugardal fyrir alla starfsmenn sem taka þátt. Verðlaunin verða afhent við lokaathöfn Hjólað í vinnuna þann 29. maí næstkomandi.

Áhugasömum er bent á að Hjólreiðafélag Reykjavíkur býður upp á öflugt starf fyrir þá sem vilja æfa hjólreiðaíþróttina með markvissum hætti, sjá www.hfr.is.

Nánari upplýsingar og skráning í Hjólað í vinnuna eru á heimasíðu verkefnisins, www.hjoladivinnuna.is.

Síðast uppfært: Sunnudagur, 24. maí 2009 02:25
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700