Forsíða Fréttasafn ÍBR Sumargjafir til grunnskólabarna
Sumargjafir til grunnskólabarna Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 20. apríl 2009 00:26

krakkar sippaAf gömlum og góðum íslenskum sið fagnar Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) sumarkomunni og gefur börnum í grunnskólum Reykjavíkur sumargjafir.

Sumargjafaverkefnið hófst árið 2005 þegar nemendur í 2.bekk fengu sippuband. Það hefur síðan verið endurtekið ár hvert og hafa þrír árgangar bæst við í hóp þeirra sem fá sumargjafir frá ÍBR.  

Tilgangur sumargjafanna er að gleðja reykvísk börn og um leið hvetja þau til að hreyfa sig og leika sér með tilvísun í íþróttir almennt.

Börn í öðrum bekk fá sippuband og börn í þriðja bekk fá bolta. Með sippuböndunum og boltum fylgir bæklingur með æfingum og leikjum. Fjórða bekk er boðið á skauta í Skautahöllina í Laugardal eða í Egilshöllina í Grafarvogi. Skautamiðanum fylgir leiga á skautum og hjálmi. Þá fá fimmtu bekkingar sundkort sem gildir í þrjú skipti í sundlaugar Reykjavíkur ásamt bækling með hugmyndum að sundleikjum.

Alls fá 5605 börn í 37 grunnskólum í Reykjavík gjafir frá ÍBR þetta árið. Sumargjöfunum er dreift til skólanna dagana 20.-22.apríl.

Það er von Íþróttabandalags Reykjavíkur að börnin verði ánægð með gjafirnar og að kennarar og foreldrar þeirra hvetji þau til að nýta þær.

Þess má geta að öllum börnum í 1.bekk í grunnskólum Reykjavíkur stendur til boða að taka þátt í Íþróttaskóla allan veturinn á vegum ÍBR, ÍTR og Íþróttafélaganna í Reykjavík. Íþróttaskólinn er því nokkurs konar sumargjöf 1.bekkinga. Rúmlega 1100 börn eru skráð í Íþróttaskóla fyrir 1.bekk í vetur sem er um 90% af öllum árgangnum.

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 29. apríl 2009 10:56
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700