Forsíða Fréttasafn ÍBR Nýr formaður og fleira á nýafstöðnu þingi
Nýr formaður og fleira á nýafstöðnu þingi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Laugardagur, 28. febrúar 2009 13:50

Fertugasta og fjórða þing Íþróttabandalags Reykjavíkur fór fram dagana 26-28 febrúar.

Ingvar Sverrisson var kjörinn nýr formaður bandalagsins en hann tekur við af Reyni Ragnarssyni sem sinnt hafði formennsku til 15 ára.  Örn Andrésson afhenti Reyni gullstjörnu ÍBR.  Reynir var einnig sæmdur heiðurskrossi ÍSÍ við þessi tímamót en Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, afhenti hana við setningu þingsins.

Ásamt Ingvari í stjórn ÍBR næsta starfstímabil voru kosin Gígja Gunnarsdóttir, Jónas Sigurðsson, Lilja Sigurðardóttir, Viggó H. Viggósson, Þórdís Gísladóttir og Örn Andrésson.  Í varastjórn voru kosin Guðrún Ósk Jakobsdóttir og Haraldur Baldursson.

Á þinginu voru samþykktar ýmsar gagnmerkar tillögur og ályktanir s.s. um Rannsóknarmiðstöð fyrir íþróttir, stuðning við reykvískt afreksfólk, stefnumótun íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík, stuðning borgar og ríkis við íþróttastarf og íþróttamannvirki og margt fleira.

Þingið var í alla staði vel heppnað og ánægja meðal fundarmanna um niðurstöður þess.

Síðast uppfært: Laugardagur, 28. febrúar 2009 20:42
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700