| Heilsuátak ÍR |
|
|
| Þriðjudagur, 17. febrúar 2009 12:54 |
|
Íþróttafélag Reykjavíkur er að fara af stað með “heilsuátak” sem stendur yfir í 6 vikur. ÍR-ingar bjóða öllum sem áhuga hafa tækifæri á að koma og nýta sér aðstöðu í ÍR-heimilinu ásamt nokkrum öðrum skipulögðum liðum. Einnig er ætlunin að kynna fyrirhugaða íþróttabyggingu en sú kynning fer fram Þriðjudagskvöldið 17. feb. kl. 20:00. Þetta framtak segja ÍR-ingar fyrst og fremst hugsað til að gera eitthvað allt annað en það sem er í gangi í dag í samfélaginu. Þeir telja komið nóg af neikvæðri umræðu og viljum bjóða uppá eitthvað uppbyggilegt og skemmtilegt. Dagskrá heilsuátaksins er að finna hér á pdf formi.
|
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 17. febrúar 2009 13:06 |