|
Þriðjudagur, 10. febrúar 2009 12:01 |
|
 Móttaka í Höfða á fimmtudaginn kl. 17 Auk styrkveitinga úr Afreks- og styrktarsjóði Reykjavíkur þá fá allir reykvísku Ólympíufararnir styrk frá borginni svo að félögin þurfa að tryggja það að þeir mæti. Einnig veitir ÍBR níu íþróttamönnum styrk og einn þeirra er útnefndur Íþróttamaður Reykjavíkur 2008. Hér eru þessir níu sem ÍBR styrkir: 1. Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttakona úr Glímufélagi Ármanns. 2. Berglind Íris Hansdóttir, handknattleikskona úr Val. 3. Eyþór Þrastarson, sundmaður úr ÍFR. 4. Hafsteinn Ægir Geirsson, hjólreiðamaður úr Hjólreiðafélagi Reykjavíkur. 5. Katrín Jónsdóttir, knattspyrnukona úr Knattspyrnufélaginu Val. 6. Ragna Björg Ingólfsdóttir, badmintonkona úr Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur. 7. Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona úr Knattspyrnufélagi Reykjavíkur. 8. Þorbjörg Ágústsdóttir, skylmingakona úr Skylmingafélagi Reykjavíkur. 9. Þormóður Jónsson júdómaður úr Júdófélagi Reykjavíkur.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 10. febrúar 2009 14:52 |