| Reykjavík International Games fóru vel fram |
|
|
| Miðvikudagur, 21. janúar 2009 10:56 | ||||||||||||||||||||
|
Frá vinstri: Kristján Möller, samgönguráðherra, Rakel Jóhannesdóttir, TBR, Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og Kári Gunnarsson, TBR. Góð stemmning var í Laugardalshöllinni í gærkvöldi þegar haldið var lokahóf Reykjavíkurleikanna eða REYKJAVÍK International Games sem fram fór um helgina. Fjöldi fólks var samankominn til að fagna vel heppnuðu móti þar sem keppt var í tíu mismunandi íþróttagreinum, m.a. badminton, keilu og skylmingum. Öttu þar kappi yfir 2.500 keppendur, þar af um 300 erlendir, þeirra á meðal verðlaunahafar frá síðustu Ólympíuleikum og íþróttafólk sem er ofarlega á alþjóðlegum styrkleikalistum. Veitt voru verðlaun fyrir besta árangur í hverri grein:
Að lokinni verðlaunaafhendingunni og almennri dagskrá þyrptust keppendur út á gólf og dönsuðu við dynjandi danslög fram eftir kvöldi. Sjáumst aftur að ári! Undirbúninganefnd Reykjavík International Games og Íþróttabandalag Reykjavíkur
|
||||||||||||||||||||
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 21. janúar 2009 11:02 |