Forsíða Fréttasafn ÍBR Úthlutun úr afrekssjóði ÍBR og Spron
Úthlutun úr afrekssjóði ÍBR og Spron Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 25. nóvember 2008 13:42

Úthlutað úr Afrekssjóði SPRON og ÍBR
Íþróttabandalag Reykjavíkur og Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis standa saman að sjóði sem hefur það að markmiði að styrkja ungt og efnilegt íþróttafólk í Reykjavík.

Úthlutað var úr sjóðnum í áttunda skiptið í gær kl. 17.00 í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Þess má geta að sjóðurinn hefur styrkt reykvískt afreksstarf um 30.000.000kr undanfarin þrjú ár. Meðal þeirra sem notið hafa styrksins eru Ólympíufararnir Ragna Ingólfsdóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir og  Sigrún Brá Sverrisdóttir.

Veittir voru styrkir vegna 32 afreksverkefna íþróttafélaganna í Reykjavík en alls bárust 53 umsóknir í sjóðinn. Heildarupphæð styrkjanna að þessu sinni er 2.520.000kr.

8. Úthlutun afrekssjóðs Spron og ÍBR
-24. nóv kl.17:00 í E-sal Íþróttamiðstöðvar í Laugardal-


1. Almennir styrkir 
• 90.000 kr til sundkonunnar Jóhönnu Gerðu Gústafsdóttur úr Sundfélaginu Ægi.
• 40.000 kr til sundkonunnar Karenar Sifjar Vilhjálmsdóttur úr Sundfélaginu Ægi.
• 40.000 kr til Antons Sveins McKee úr Sundfélaginu Ægi.
• 150.000 kr til knattspyrnudeildar KR vegna afrekshóps.
• 60.000 kr til Heklu Helgadóttur úr Þórshamri vegna keppnisferða.
• 30.000 kr til Diljá Guðmundsdóttur úr Þórshamri vegna keppnisferða.
• 150.000 kr til skíðamannsins Gísla Rafns Guðmundssonar úr Ármanni.
• 70.000 kr til skíðakonunnar Fanneyjar Þorbjargar Guðmundsdóttur vegna æfinga- og keppnisferða.
• 70.000 kr til skíðakonunnar Selmu Benediktsdóttur vegna æfinga- og keppnisferða.
• 150.000 kr vegna afreksstarfs frjálsíþróttadeildar ÍR.
• 70.000 kr til skíðamannsins Víkings Þórs Björnssonar úr Víkingi.
• 70.000 kr til skíðadeildar Víkings vegna Jóns Gauta Ástvaldsdóttur.
• 40.000 kr til Mögnu Ýr Johansson úr Keilufélagi Reykjavíkur.
• 150.000 kr vegna afreksstarfs TBR.
• 60.000 kr til frjálsíþróttakonunnar Írisar Önnu Skúladóttur úr Fjölni.
• 60.000 kr til frjálsíþróttakonunnar Arndísar Ýr Hafþórsdóttur úr Fjölni.
• 60.000 kr til frjálsíþróttamannsins Sveins Elíasar Elíassonar úr Fjölni.
• 60.000 kr til frjálsíþróttamannsins Bjarna Malmquist Jónssonar úr Fjölni.
• 300.000 kr vegna afreksstarfs Golfklúbbs Reykjavíkur.
• 100.000 kr til sundkonunnar Sigrúnar Brá Sverrisdóttur úr Fjölni.
• 90.000 kr til Hafþórs Harðarsonar úr keiludeild ÍR.
• 60.000 kr til Róberts Dan Sigurðssonar úr keiludeild ÍR.
• 60.000 kr til Sævars Þórs Róbertssonar úr Júdófélagi Reykajvíkur.
• 90.000 kr til Gunnhildar Garðarsdóttur úr Skylmingafélagi Reykjavíkur.
• 70.000 kr til Gunnlaugs Karlssonar úr Vélhjólaíþróttaklúbbnum.


2. Þjálfarastyrki(30-80þ.kr)
• Frjálsíþróttadeildir Ármanns/Fjölnis Stefán Jóhannsson
• Dansfélag Reykjavíkur Elísabet Sif Haraldsdóttir
• Keiludeild ÍR Hörður Ingi Jóhannsson
• ÍR-frjálsíþróttadeild Burkni Helgason
• ÍR-frjálsíþróttadeild Þráinn Hafsteinsson
• Valur-handknattleikur Stefán Arnarson
• Skautafélag Reykjavíkur Listhlaupaþjálfarar

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 25. nóvember 2008 14:32
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700