Forsíða Fréttasafn ÍBR Stöndum vörð um íþróttahreyfinguna
Stöndum vörð um íþróttahreyfinguna Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Miðvikudagur, 05. nóvember 2008 10:55

Íþróttafélögin í Reykjavík skora á Reykjavíkurborg að standa vörð um íþróttastarf fyrir börn og unglinga í borginni og tryggja þannig að reykvísk ungmenni fái áfram notið þess öfluga íþrótta- og forvarnarstarfs sem íþróttahreyfingin býður upp á.
Þannig treystir íþróttahreyfingin í Reykjavík því að Reykjavíkurborg láti þann niðurskurð sem borgin verður að gera á fjárhagsáætlun sinni koma eins lítið við fjárveitingar til íþrótta- og æskulýðsstarfs eins og frekast er kostur.

Án fjárframlaga frá Reykjavíkurborg munu íþróttafélögin ekki hafa nokkra möguleika til að sinna því mikilvæga uppeldis- og forvarnarstarfi sem hún hefur sinnt.
Jafnframt munu félögin gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að auðvelda börnum að stunda áfram íþróttir í því erfiða þjóðfélagsástandi sem nú er. Það er ákaflega mikilvægt að efnahagsástandið hafi sem minnst áhrif á daglegt líf þeirra og auðveldi þannig fjölskyldunum að takast á við þann vanda sem blasir við.

Síðast uppfært: Mánudagur, 17. nóvember 2008 15:36
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700