Forsíða Kynningarrit um íþrótta- og félagsstarf í Reykjavík
Kynningarrit um íþrótta- og félagsstarf í Reykjavík Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Þriðjudagur, 07. september 2010 08:14

Út er komið í tíunda sinn kynningarrit Íþróttabandalags Reykjavíkur um íþrótta- og félagsstarf í Reykjavík. Í ritinu er að finna upplýsingar um það helsta sem í boði er hjá íþróttafélögum og félagsmiðstöðvum í Reykjavík.

Finna má öll íþróttafélög í Reykjavík í ritinu í stafrófsröð. Hjá hverju félagi koma fram helstu grunnupplýsingar eins og aðsetur, símanúmer, netföng og heimasíður. Þeir sem hafa ákveðna íþróttagrein í huga og vilja vita hvar er hægt að iðka hana geta flett upp á opnu með yfirliti yfir allar þær greinar sem hægt er að iðka í borginni. Þá eru einnig kort af hverfum borgarinnar með upplýsingum um staðsetningu og æfingastaði íþróttafélaganna. Allur almennur texti í ritinu og upptalning á íþróttagreinum er á fjórum tungumálum; íslensku, ensku, pólsku og tælensku.

Kynningarritinu er dreyft til allra grunnskólabarna í borginni. Einnig verða send eintök til íþróttafélaga, frístundamiðstöðva, heilsugæslustöðva o.fl.

Smellið hér til að skoða ritið á tölvutæku formi (pdf).

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700