Forsíða Bronsleikar ÍR - 18.september
Bronsleikar ÍR - 18.september Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Miðvikudagur, 01. september 2010 12:59

16. september árið 2000 stóð Vala Flosadóttir á verðlaunapalli á Ólympíuleikunum í Sydney í Ástralíu. Hún tók við bronsverðlaunum í stangarstökki eftir að hafa sveiflað sér yfir rána í 4.50m hæð. Einu sinni áður höfðu ÍR-ingar eignast veðlaunahafa á Ólympíuleikum en það var þegar Vilhjálmur Einarsson fékk silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourn árið1956 með stökki upp á 16,26m. Þess má geta að Vilhjálmur á enn Íslandsmetið í þrístökki 16,70m sem sett var 7.ágúst 1960. Til heiðurs Vilhjálmi heldur Frjálsíþróttadeild ÍR Silfurleika ÍR í nóvember ár hvert og til heiðurs Völu verður nú, á 10 ára afmæli verðlauna hennar, efna til Bronsleika ÍR henni til heiðurs.

Til Bronsleika ÍR er boðið öllum börnum sem fædd eru árið sem Vala fékk bronsið og síðar það er 10 ára og yngri. Á Bronsleikunum verður áhersla lögð á gleði og gaman og fjölbreyttar þrautir á stöðvum víðsvegar um Frjálsíþróttahöllina í Laugardal. Nánari upplýsingar um þrautirnar má finna með því að smella hér.

Skrá þarf börn til þátttöku og fer skráning fram hjá Margréti Héðinsdóttur formanni Frjálsíþróttadeildar ÍR á netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Skráningu lýkur á miðnætti þriðjudaginn 14.september, skráningargjald er kr.1.500.

Nánari upplýsingar um Bronsleika ÍR má finna hér.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 01. september 2010 13:25
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700