| Vetraræfingar að hefjast |
|
|
|
| Skrifað af: Administrator |
| Þriðjudagur, 31. ágúst 2010 15:52 |
|
Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur til úthlutunar tíma í um tuttugu skólaíþróttahúsum í Reykjavík. Miðvikudaginn 1.september hefjast æfingar íþróttafélaga og almenningshópa í íþróttahúsunum. Hópar íþróttafélaganna stunda æfingar í fyrstu tímunum á daginn og síðan taka almenningshópar við síðar á kvöldinu. Á hverjum vetri eru um 220 almenningshópar með fasta tíma í skólaíþróttahúsunum. Áætlað er að í þessum hópum séu um 2.300 manns að iðka ýmsar íþróttagreinar. Upplýsingar um lausa tíma fyrir almenningshópa má finna með því að smella hér. |
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 31. ágúst 2010 16:05 |