| Tap gegn Freiberg og sigur gegn Innsbruck |
|
|
|
| Skrifað af: Administrator |
| Fimmtudagur, 01. júlí 2010 00:00 |
|
Lið Freiberg frá Þýskalandi vann stórsigur á liði Reykjavíkur á Alþjóðaleikum ungmenna í morgun 23-14. Þjóðverjarnir voru mjög sterkir eins og sést á úrslitunum og spiluðu vel. Reykjavísku strákarnir voru ansi stressaðir í leiknum og létu frekar slæma dómgæslu trufla sig. Þeir létu þó tapið gegn Freiberg ekki á sig fá og komu tvíefldir til leiks gegn Innsbruck frá Austurríki eftir hádegið og sigruðu þá 13-11. Markvörður Innsbruck spilaði leik lífs síns og lét reykvísku leikmennina hafa vel fyrir því að koma boltanum í markið. Með því að vinna vel saman og berjast fyrir sínu tókst þeim þó að klára leikinn. Reykvíska liðið endaði því í 3.sæti í sínum riðli og spilar á morgun um 5.sætið á mótinu. Í gær fór hópurinn að skoða mosku, íslamska helgibyggingu, og kíktu einnig við í stóra verslunarmiðstöð. Strákarnir hafa verið til sóma í ferðinni. Þeir eru áhugsamir í skoðunarferðum og leggja sig fram í leikjunum. Tenglar með hagnýtum upplýsingum: Keppnisdagskrá í handknattleik
|
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 01. júlí 2010 15:14 |