| Reykjavíkurmótð í knattspyrnu |
|
|
|
| Skrifað af: Administrator |
| Föstudagur, 05. mars 2010 10:37 |
|
Heiðursgestir verða kunnir kappar sem gerðu garðinn frægan með þessum félögum á árum áður en það eru þeir Bjarni Guðnason úr Víkingi og Atli Helgason úr KR og munu þeir afhenda sigurverðlaunin að leik loknum. Víkingar lögðu Fylki í undanúrslitunum en sá leikur fór í vítaspyrnukeppni eftir að staðan eftir venjulega leiktíma var 2 - 2. KR lagði Fram hinsvegar að velli, 4 - 2 í hinum undanúrslitaleiknum. Úrslitaleikur í Reykjavíkurmóti kvenna fór fram 13.febrúar síðastliðinn. Í úrslitum mættust Valur og Fylkir en það voru Valskonur sem sigruðu 4-0. Knattspyrnukonunar og þjálfararnir, Brynja Guðjónsdóttir og Helena Ólafsdóttir, afhentu verðlaun að leik loknum. Reykjavíkurmótið í knattspyrnu er skipulagt af Knattspyrnuráði Reykjavíkur. |
| Síðast uppfært: Föstudagur, 05. mars 2010 12:41 |