Forsíða Fjölmennur fundur um næringu íþróttaiðkenda
Fjölmennur fundur um næringu íþróttaiðkenda Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Mánudagur, 22. febrúar 2010 11:48

Síðastliðinn föstudag stóð Íþróttabandalag Reykjavíkur fyrir fundi um næringu íþróttaiðkenda. Mjög góð mæting var á fundinn en hann sóttu tæplega fjörtíu manns.

Glærur frá fundinum má nálgast með því að smella á nöfn fyrirlesaranna hér að neðan.

Hólmfríður Þorgeirsdóttir
Leiðbeiningar Lýðheilsustöðvar um framboð á matvörum hjá íþróttafélögum og í íþróttamannvirkjum.

Margrét og Ragnhildur
Áherslubreytingar sem gerðar voru á framboði á næringu í íþróttamannvirkjum Knattspyrnufélagsins Vals kynntar.

Ólafur Sæmundsson
Næring íþróttafólks. Þarf íþróttafólk að nota fæðubótarefni eða orkudrykki? Hvað gæti komið í staðinn fyrir slíkar vörur? Ólafur mælti með því á fundinum að fólk kynnti sér nýlega grein um áhrif næringu á getu íþróttamanna. Smellið hér til að skoða greinina.


Ávaxtabíllinn bauð uppá holla og góða súpu og samlokur meðan á fundinum stóð. Fyrirtækið Ávaxtabíllinn býður uppá hollar og góðar lausnir fyrir fyrirtæki og íþróttafélög. Smellið hér til að skoða hvað Ávaxtabíllinn hefur uppá að bjóða og hér til að skoða sérstakt tilboð Ávaxtabílsins til íþróttafélaga.

Á fundinum var lögð fram könnun á verði á mjólkurvörum annarsvegar og grænmeti og ávöxtum hinsvegar auk þess sem kynnt var tilboð Mjólkursamsölunnar og Banana til íþróttafélaga. Smellið hér til að kynna ykkur verðkönnun á mjólkurvörum og hér á grænmeti og ávöxtum.

Meðfylgjandi mynd er af Ólafi Sæmundssyni, einum af fyrirlesurum fundarins.

 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 23. febrúar 2010 13:22
 
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBR?
 

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700