| Drekinn sigursæll í Svíþjóð |
|
|
|
| Skrifað af: Administrator |
| Föstudagur, 19. febrúar 2010 14:00 |
|
Iðkendur úr Íþróttafélaginu Drekanum - Wushu félagi Reykjavíkur tóku þátt í alþjóðlegu wushu móti í Svíþjóð um síðustu helgi. Drekamenn stóðu sig vel á mótinu og urðu í efstu þremur sætunum í unglingaflokki. Mótið var haldið á síðasta degi árs uxans (2009) og voru Drekamenn á því að gott gengi í mótinu væri góður fyrirboði fyrir ár tígursins (2010) sem framundan er. Fleiri myndir frá mótinu og nánari upplýsingar um félagið má finna á heilsudrekinn.is og facebook síðu félagsins. |
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 16. febrúar 2010 16:16 |