| Íþróttaiðkun borgarbúa |
|
|
| Mánudagur, 02. júní 2008 16:53 |
|
Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur látið gera könnun á íþróttaiðkun Reykvíkinga. Þetta er svipuð könnun og ÍBR hefur látið gera á tveggja ára fresti frá árinu 2002 en könnunin að þessu sinni er heldur viðameiri. Helstu niðurstöður könnunarinnar eru að rúm 70% Reykvíkinga stunda hreyfingu reglulega og eru líkamsrækt og göngur vinsælastar. Ástundun er góð á meðal þeirra sem stunda hreyfingu reglulega eða 3,8 skipti á viku að meðaltali. Rúm 15% þeirra sem stunda íþróttir gera það innan íþróttafélaga og eru karlar fleiri en konur. Um helmingur barna í Reykjavík stundar íþróttir innan íþróttafélaga og eru flestir í knattspyrnu og fimleikum. Mikil ánægja er með Frístundakort ÍTR og með þá þjónustu sem íþróttafélögin bjóða unga fólkinu. Þá telja um 82% foreldra það skipta máli að tengja skóla og íþróttaæfingar. Könnunin sýndi einnig mikla ánægju með Reykjavíkurmarþon. Hér má nálgast alla skýrsluna |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 10. desember 2008 11:35 |