| Afrekssjóður SPRON og ÍBR Starfsreglur |
|
|
| Miðvikudagur, 07. maí 2008 13:32 |
|
Sjóðurinn er samstarfsverkefni Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR) og Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis (SPRON). 1.gr. Skipan Í stjórn sjóðsins sitja 3 einstaklingar. Stjórn ÍBR skipar tvo og SPRON einn. Kjörtímabil stjórnar er samhliða ársþingum ÍBR eða tvö ár. Hlutverk stjórnar er að úhluta fé úr sjóðnum og fylgjast með nýtingu styrkja. Starfsmaður sjóðsstjórnar skal vera valinn úr starfsliði skrifstofu ÍBR. 2.gr. Fjármagn ÍBR annars vegar og SPRON hinsvegar greiða 5 milljónir króna í sjóðinn ár hvert. Fjármagn til úthlutunar hvert ár nemur því 10 milljónum króna. 3.gr. Markmið Markmið sjóðsins er að styrkja eftirfarandi: Unga og efnilega reykvíska íþróttamenn á aldrinum 15-22 ára sem hafa hæfileika og getu til að verða afreksmenn í íþróttum (frávik frá þessum aldursmörkum eru heimil með hliðsjón af íþróttagreinum og undantekningum ef sérstök ástæða er til). Þjálfara reykvískra ungmenna til þátttöku í námskeiðum erlendis. Sjóðurinn mun styrkja verkefni sem tengjast afreksíþróttum svo sem æfingabúðir, námskeið og ferðir á mót erlendis. Landsliðsferðir eru ekki styrktar enda hljóta þær fjármagn úr öðrum sjóðum ÍBR, ÍSÍ og sérsambandanna. Félög eru sérstaklega hvött til nýsköpunar á sviði afreksíþrótta. Einnig mun sjóðurinn veita reykvískum íþróttamönnum 13 ára og eldri, sem unnið hafa til Íslandsmeistaratitla, viðurkenningu ár hvert. 4.gr. Skilyrði Væntanlegur styrkþegi þarf að vera ofarlega í sinni íþróttagrein á landsvísu eða vera þjálfari ungmenna í fremstu röð. 5.gr. Umsóknir Aðeins íþróttamenn sem iðka eða þjálfa íþrótt sína hjá reykvískum íþróttafélögum innan vébanda ÍBR geta sótt um styrkveitingar í sjóðinn. Umsóknir skulu berast stjórn sjóðsins á þar til gerðum eyðublöðum. Sjóðsstjórn er heimilt að hafa frumkvæði að einstökum styrkveitingum. Auglýst verður eftir umsóknum til allra aðildarfélaga ÍBR tvisvar sinnum á ári, í janúar og september. Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til að afla sér nánari upplýsinga en þeirra sem fram koma á umsóknareyðublaði og leita umsagnar annarra aðila. Styrkveitingar, sem sjóðstjórn ákveður, skulu bornar undir stjórn ÍBR til staðfestingar. 6.gr. Uppgjör Styrkurinn verður greiddur til styrkhafa eftir að verkefni lýkur og borist hefur fjárhagslegt uppgjör og stutt greinagerð um það. 7.gr. Gildistími og uppsagnarákvæði Starfsreglur þessar taka gildi þegar stjórnir ÍBR og Menningar- og styrktarsjóðs SPRON hafa samþykkt þær. Starfsreglur og fjármögnun sjóðsins skal endurskoða þriðja hvert ár. Samningur þessi er uppsegjanlegur með 6 mánaða fyrirvara og skal uppsögn taka gildi um áramót. 8. gr. Kynningarmál Auglýsa skal eftir umsóknum í sjóðinn í helstu prentmiðlum hverju sinni og á heimasíðum SPRON og ÍBR. Auk þess skulu upplýsingar um sjóðinn allajafna vera á heimsíðum beggja aðila. ÍBR mun sjá um að koma upplýsingum til fjölmiðla um úthlutanir úr sjóðnum sem og annað fréttnæmt tengt honum. Í tilkynningum til fjölmiðla skal þess ávallt getið að um sé að ræða samvinnuverkefni ÍBR og SPRON. Að gefnu samþykki þeirra íþróttamanna sem sjóðurinn styrkir og eftir atvikum foreldra þeirra, getur SPRON nýtt sér krafta þeirra til ýmissa kynningarmála.
|
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 06. ágúst 2008 12:21 |