| Samþykkt fyrir afreks -og styrktarsjóð Reykjavíkur |
|
|
| Miðvikudagur, 02. apríl 2008 11:45 |
|
1. gr. Sjóðurinn heitir Afreks- og styrktarsjóður Reykjavíkur og er hann í vörslu Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. 2. gr. Sjóðurinn veitir styrki og viðurkenningar eftir nánari ákvörðun Íþrótta- og tómstundaráðs. 3. gr. Markmið sjóðsins er:
4. gr. Íþrótta- og tómstundaráð skipar þriggja manna stjórn sjóðsins, er einn tilnefndur af stjórn ÍBR en hinir án tilnefningar. 5. gr. Stjórn sjóðsins úthlutar styrkveitingum úr sjóðnum. Íþrótta- og tómstundaráði er heimilt að auglýsa eftir umsóknum um styrki eftir nánari ákvörðun sinni, en einnig getur það veitt styrki og viðurkenningu án umsóknar enda sé það sammála um slíka fjárveitingu. 6. gr. Tekjur Afreks- og styrktarsjóðsins eru sem hér segir:
7. gr. Höfuðstóll sjóðsins má aldrei nema lægri fjárhæð en kr. 50.000.- miðað við lánskjaravísitölu í ársbyrjun 1987, þ.e. 1565 stig. Endurskoðaða reikninga sjóðsins skal birta árlega með reikningum borgarsjóðs. 8. gr. Samþykkt þessi tekur gildi þegar borgarráð Reykjavíkur hefur staðfest hana og um leið fellur úr gildi skipulagsskrá fyrir Styrktarsjóð Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur frá 1979.
Samþykkt í borgarráði 20. apríl 1993. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 05. nóvember 2008 13:21 |