|
Þriðjudagur, 25. mars 2008 14:58 |
|

Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni, íþróttamaður Reykjavíkur 2009
Í byrjun hvers árs fer fram athöfn þar sem Íþróttamaður Reykjavíkur er krýndur.
Í reglugerð um íþróttamann Reykjavíkur segir eftirfarandi:
- Íþróttamaður Reykjavíkur er kjörinn ár hvert af framkvæmdastjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur.
- Íþróttamaður Reykjavíkur skal vera íslenskur ríkisborgari og hafa verið félagi í reykvísku íþróttafélagi allt undanliðið ár.
- Íþróttafélögin í Reykjavík geta komið með ábendingar um einstaklinga sem til greina gætu komið og skal fylgja skrá yfir afrek þeirra.
- Borgarstjórinn í Reykjavík gefur farandbikar sem Íþróttamaður Reykjavíkur geymir í eitt ár. Íþróttamaður Reykjavíkur fær einnig afhentan eignarbikar sem er gjöf ÍBR.
- Afhending verðlaunanna fer fram við hátíðlega athöfn ekki seinna en í byrjun febrúar ár hvert.
- Reglugerð þessi er sett samkvæmt samþykkt framkvæmdastjórnar ÍBR þann 19. desember árið 2000.
Smellið hér til að skoða lista yfir íþróttamenn Reykjavíkur 1979-2009.
|
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 18. febrúar 2010 18:05 |