|
Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur sett sér eftirfarandi markmið varðandi afreksíþróttir: Stefnumið Stefnumið íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík er að Reykvíkingar eigi ávallt íþróttamenn í fremstu röð. Jafnframt er stefnt að því að í Reykjavík sé að finna aðstöðu fyrir afreksíþróttafólk eins og hún getur best orðið. Það er ljóst að til þess að afreksmenn verði til er nauðsynlegt að skapa breiðan hóp íþróttamanna sem ílendast í íþróttum á unglingsaldri og halda áfram fram á þann aldur þegar mestar líkur eru á hámarksárangur náist. Sérstaklega skal lögð áhersla á að efla þátt sálrænnar þjálfunar í uppbyggingu íþróttamannsins.Með afreksstefnu sinni vill ÍBR skapa grundvöll fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk í aðildarfélögum sínum, til að ná sérlega góðum árangri í sinni íþróttagrein. Leiðir Samvinna Mikilvægt er að allir sem koma að afreksmálum í borginni vinni saman að því að ná árangri, félög eða deildir sameinist um afreksflokka eða lið. Með því að sameina kraftana er hægt að spara í rekstri og mannafla auk þess sem auðveldara ætti að vera að byggja upp góða aðstöðu fyrir afreksíþróttir í borginni. ÍBR og Reykjavíkurborg vinni að þessu með félögunum og styðji við aðgerðir sem miða að meiri samvinnu þeirra. Aðstaða Stefnt er að því að aðstaða fyrir afreksíþróttir í Reykjavík sé ávallt eins og best verður á kosið. ÍBR og aðildarfélög vinni ásamt ÍTR að því að skilgreina hvaða aðstöðu sé helst ábótavant á hverjum tíma og geri tillögur að uppbyggingu. Þjálfun og fræðsla Stór þáttur á leið til árangurs er þjálfun íþróttamannsins, bæði líkamleg og sálræn. ÍBR vill aðstoða félögin á þessu sviði á eftirfarandi hátt: - með námskeiðahaldi fyrir þjálfara
- með því að veita þjálfurum styrki til að sækja námskeið erlendis
- með því að stuðla að samvinnu þjálfara þvert á greinar
- með fræðslu fyrir íþróttafólk
- með stuðningi við rannsóknir á sviði íþrótta
Keppni Áfram mun ÍBR styrkja afrekshópa og einstaklinga til ferðalaga samkvæmt reglugerð. ÍBR er stefnir að því að reykvískir unglingar taki þátt í Borgarleikum unglinga. Nám Mikilvægt er að ungt íþróttafólk sinni námi þó að mikill tími fari í æfingar og keppni. ÍBR hvetur félögin til að auðvelda ungu íþróttafólki að ná sínum markmiðum gagnvart skóla, fjölskyldu, vinum og íþrótt sinni. Íþróttafélögin eiga kost á að sækja um styrki vegna afreksstarfs, sjá nánar undir Styrkir.
|